
Fargjaldatekjur árið 2025 voru 2.363.949.000 kr. og jukust um 8,2% frá árinu 2024.
Fargjaldatekjur á milli ára. Allar fjárhæðir eru í þús. kr.

Ánægja almennings gagnvart Strætó hefur aukist frá fyrra ári og mældist 3,2 í heildarniðurstöðu ársins 2025. Notendur Strætó eru marktækt jákvæðari í garð þjónustunnar en þeir sem ekki hafa nýtt sér hana á undanförnum 12 mánuðum.
Niðurstöður mælingarinnar benda til þess að þjónustuaukningin sem tók gildi í ágúst 2025 hafi haft jákvæð áhrif á viðhorf notenda. Á sama tíma stendur viðhorf þeirra sem ekki nota Strætó nánast í stað á milli ára, sem undirstrikar mikilvægi þess að halda áfram að bæta þjónustuna og auka sýnileika hennar til að ná til nýrra notenda.
Hversu jákvæð/ur eða neikvæð/ur ertu gagnvart Strætó á kvarðanum 1-5?
Markmið Strætó þegar kemur að sölu- og markaðsmálum eru sem fyrr að auka notkun almenningssamgangna, að vekja athygli á þjónustu Strætó og fjölga reglulegum notendum þjónustunnar. Með tilkomu snertilausra greiðslna voru aukin tækifæri að fá inn notendur sem eru kannski ekki reglulegir notendur til að prófa þjónustuna sem og ferðamenn enda þægilegur og auðveldur greiðslumáti. Eins vakti þjónustuaukningin athygli og má ætla að hún hafi náð til nýrra notenda auk þess að skila inn ánægðari hóp viðskiptavina.

Á árinu 2025 hélt notkun snertilausra greiðslna áfram að aukast verulega og fór fram úr væntingum. Rauntekjur af snertilausum greiðslum námu 322.501.005 kr. sem var 103% umfram áætlun ársins. Þróunin sýnir að innleiðing greiðslulausnarinnar hefur fengið afar góðar viðtökur og að notendur kjósa í auknum mæli einfaldar og hraðvirkar greiðsluleiðir.
Athygli vekur að erlend kortavelta var lítillega meiri en innlend, eða 50,5% af heildarveltu samanborið við 49,5% innlendra korta. Þetta bendir til þess að snertilausar greiðslur hafi reynst sérstaklega vel fyrir erlenda gesti sem nýta þjónustu Strætó. Gögnin sýna að gestir frá Bretlandi og Bandaríkjunum nýttu snertilausar greiðslur hvað mest á árinu, hvort um sig með 9,3% af heildarveltu, sem undirstrikar mikilvægi lausnarinnar fyrir ferðamenn sem kjósa einfalt og aðgengilegt greiðsluferli án fyrirframkaupa á miða. Þar á eftir komu Þýskaland (4,3%), Ítalía (2,3%), Frakkland (1,9%), Spánn (1,5%), Kanada (1,5%) og Danmörk (1,4%).
Aukningin í snertilausum greiðslum styður við stafræna þróun Strætó, bætir aðgengi að þjónustunni og einfaldar upplifun notenda, jafnt innlendra sem erlendra.

Strætó hefur um árabil verið virkur þátttakandi hátíðarinnar Hinsegin daga og staðið fyrir hönnun svokallaðra Pride vagna og var engin undantekning á því árið 2025. Strætó og listakonan Shoplifter (Hrafnhildur Arnardóttir) tóku höndum saman og var Pride vagninn listilega skreyttur verkum hennar. Skilaboðin voru að öll eru velkomin um borð í Strætó enda eiga öll rétt á sínu sæti í samfélaginu, óháð því hver þau eru.
Þann 17. ágúst tók gildi umfangsmikil þjónustuaukning á höfuðborgarsvæðinu og var þar stigið mikilvægt skref í átt að betri, skilvirkari og aðgengilegri almenningssamgöngum. Með auknu framboði ferða var markmiðið að stytta biðtíma og gera vistvænar samgöngur raunhæfari valkost fyrir fleiri íbúa svæðisins.
Lögð var megináhersla á skýra og víðtæka upplýsingamiðlun um breytingarnar til að tryggja að notendur og aðrir hagaðilar fengju greinargóðar upplýsingar um nýtt þjónustufyrirkomulag. Herferðin „Fleiri ferðir, styttri bið“ var áberandi í umhverfismiðlum, í strætóskýlum, í íþrótta- og sundmannvirkjum sem og á net- og samfélagsmiðlum. Með einföldum og skýrum skilaboðum var lögð áhersla á þann ávinning sem breytingarnar höfðu fyrir viðskiptavini – styttri bið, betri nýtingu tíma og aukið aðgengi að sjálfbærum ferðamáta.

Strætó var þáttakandi í Evrópskri samgönguviku árið 2025 líkt og áður. Samgönguvika er evrópskt átak um bættar samgöngur í borgum og bæjum og er markmiðið að hvetja fólk til umhugsunar um eigin ferðavenjur og virkja fleiri í að nota fjölbreytta, vistvæna ferðamáta.
Þetta árið tók Strætó þátt í spennandi málþingi um fjölbreyttar hliðar á samgöngum í Ráðhúsi Reykjavíkur en þema vikunnar var Samgöngur fyrir öll. Strætó flutti erindi um leiðakerfið og þjónustuaukninguna og Navilens kóða sem er bylting í aðgengi fyrir blinda og sjónskerta.
Evrópsk samgönguvika endar á bíllausa deginum og eins og fyrri ár var frítt í Strætó á þeim degi og fólk hvatt til að nota vistvæna ferðamáta.
Á árinu var lögð áhersla á að bæta þjónustu í leiðakerfinu fyrir viðskiptavini.
Þann 17.ágúst 2025 var þjónusta Strætó á höfuðborgarsvæðinu aukin til muna. Þjónustuaukningin er liður í samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó ásamt því að vera undirbúningur fyrir Nýtt leiðanet sem tekur gildi að loknum framkvæmdum fyrstu lotu Borgarlínunnar. Samhliða voru skerðingar frá Covid-tímabilinu teknar til baka. Mikil ánægja hefur verið með þjónustuaukninguna meðal notenda.
Markmiðið með breytingunum er að bæta aðgengi íbúa að samgöngum með góðri tíðni og auka þannig notkun almenningssamgangna.
Með aukinni tíðni og bættri þjónustu jókst aðgengi íbúa verulega að almenningssamgöngum. Hlutfall íbúa á höfuðborgarsvæðinu sem búa innan við 400 metra radíus frá stoppistöð með 10 mín tíðni á annatíma hækkaði úr 18% í rúmlega 50%.
Þjónustuaukningin fól í sér eftirfarandi breytingar:

Samhliða þjónustuaukningu 17. ágúst 2025 þá voru fjórar leiðir á höfuðborgarsvæðinu endurskoðaðar varðandi stundvísi. Leiðirnar voru valdar út frá gögnum Strætó um hvaða leiðir hefðu verstu stundvísi. Leiðir 2 og 5 voru valdar og lagfærðar en stundvísi vagna á báðum þessum leiðum versnaði um 20 prósentustig á tímabilinu frá 14.september-13.október frá 2023 til 2024. Á þessu sama tímabili árið 2024 mældist stundvísi leiðar 2 aðeins 53% og leiðar 5 aðeins 60%. Eftir tímatöflulagfæringarnar jókst stundvísi beggja leiða, stundvísi á leið 2 var orðin 62% og 71% á leið 5 á umræddu tímabili.
Tímatöflulagfæringarnar fólu í sér að hliðra til mínútum innan ferða, breyta upphafstíma lítillega og auka eða minnka heildaraksturstíma.
Stundvísi er mæld fyrir hverja brottför frá stoppistöðvum og leiðin telst stundvís ef farið er af stað hvorki meira en 1 mín of snemma né 4 mínútum of seint frá stoppistöð.
Tímabilið 13. september – 14. október var valið þar sem umferðin telst tiltölulega venjuleg þá, umferðin er jafnan minni um sumarið og það er meiri umferð í lok ágúst og byrjun september þegar skólar hefjast en svo jafnar hún sig.
Tímatöflulagfæringar fela í sér að greina tölfræðileg frávik í stundvísi fyrir hverja stoppistöð eftir tíma dags og aðlaga aksturstíma á milli stoppistöðva, annað hvort með því að lengja eða stytta hann. Breytileiki í aksturstíma ræðst að miklu leyti af umferð sem er í eðli sínu breytileg. Þrátt fyrir það má oft greina ákveðin mynstur í gögnunum og er markmiðið að hanna tímatöflu sem endurspeglar raunverulegan aksturstíma eins vel og kostur er.
Bera má saman stundvísi vagna á milli ára 2024 og 2025 en hafa skal í huga að það eru aðrir þættir sem taka breytingum á tímabilinu, sem dæmi má nefna bæði aukna tíðni á leið 5 og aukningu á umferð.
Höfuðborgarsvæðið
Fyrir tímabilið 14.sept – 13.okt á milli ára 2024 og 2025 hefur heildar-stundvísi allra leiða á höfuðborgarsvæðinu aukist frá 72,5% -> 73,4% eða um tæp 1% og var rúm 73% árið 2025. Snemmbúnar brottfarir jukust einnig um 1% og var tæp 5% á meðan seinum ferðum hefur fækkað um 2% og var tæp 22%.
Leið 2
Snemmbúnum brottförum á leið 2 hefur fjölgað frá 1.7%-> 4.6%. Stundvísi á leið 2 hefur hins vegar aukist um 8.4 prósentustig eða frá 53,3% -> 61,7% og lækkað um 11.3 prósentustig í seinum ferðum eða frá 45.0% -> 33.7%. Þetta er afskaplega jákvæð þróun og gögnin sýna að leið 2 er ekki lengur óstundvísasta leiðin heldur er hún núna í fjórða sæti.
Leið 5
Stundvísi á leið 5 hefur aukist um 10.3 prósentustig eða frá 60.4%->70.7% og lækkað um 13 prósentustig í seinum ferðum eða frá 37.3% -> 24.3%. Snemmbúnum brottförum hefur hins vegar fjölgað frá 2.3% -> 5.1%. Nú er leið 5 ekki lengur í fjórða sæti yfir óstundvísustu leiðirnar heldur því níunda og er það mjög jákvæð þróun.
Í heildina litið þá má draga þá ályktun að tímatöflulagfæringarnar sem gerðar voru samhliða þjónustuaukningunni hafi skilað mjög góðum árangri.
Við samanburð á öllu árinu 2024 og 2025 má sjá að stundvísi hefur minnkað um rúmt eitt prósentustig og var 76%, snemmbúnum brottförum hefur fjölgað um tæpt eitt prósentustig og var tæp 5% á meðan seinar brottfarir mælast um 19% árið 2025. Þegar allar leiðir eru bornar saman árin 2024 og 2025 má sjá að í 18 þeirra var meira um snemmbúnar brottfarir árið 2025 en árið á undan.
Höfuðborgarsvæðið
Þegar tímabilið 14. september – 13. október 2025 er skoðað fyrir allar leiðir á höfuðborgarsvæðinu þá reyndist stundvísi leiðar 4 mest eða um tæp 90% á meðan stundvísi leiðar 11 jókst mest um tæp 11 prósentustig á sama tíma. Leið 17 var með flestar seinar brottfarir á þessu tímabili, rúm 42% af brottförum leiðarinnar.
Mynd: Samanburður á stundvísi allra leiða á höfuðborgarsvæðinu á gefnu tímabili á árunum 2023-2025, flokkað eftir minnkandi stundvísi á árinu 2025.
Án leiðar 8 og næturleiða
Við samanburð á virkum dögum á tímabilinu frá miðjum ágúst þegar þjónustuaukningin átti sér stað og út árið fyrir árin 2024 og 2025 þá er ekki mikill munur milli ára. Stundvísin stendur í stað í rúmu 71%, snemmbúnar brottfarir jukust um eitt prósentustig og var tæp 5% á meðan seinum brottförum fækkar um eitt prósentustig og var rúm 24%.
Aukin seinkun í leiðakerfi Strætó á síðustu árum má að miklu rekja til aukinnar umferðar á höfuðborgarsvæðinu en talið er að umferðin aukist um 5% milli ára en en fram að þjónustuaukningunni höfðu tímatöflur ekki verið endurskoðaðar að ráði. Á næstunni eru þó fyrirhugaðar frekari tímatöflulagfæringar til að bæta stundvísi á þeim leiðum með verstu stundvísi.