
Mannauður Strætó bs. er lykilþáttur í starfsemi félagsins og forsenda þess að veita örugga, áreiðanlega og aðgengilega þjónustu.
Strætó bs. leggur áherslu á að skapa faglegt, öruggt og fjölbreytt starfsumhverfi þar sem vellíðan starfsfólks, jafnrétti og þróun í starfi eru í forgrunni. Félagið vinnur markvisst að því að laða að og halda í hæft starfsfólk og tryggja að starfsfólk hafi þau tækifæri og stuðning sem þarf til að sinna störfum sínum með ábyrgð og fagmennsku.
Áhersla er lögð á að:
Starfsfólk Strætó bs. er lykill að árangri félagsins og gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja gæði og samfellu í þjónustu.
Strætó bs. leggur jafnframt áherslu á vernd persónuupplýsinga starfsfólks og örugga meðferð upplýsinga í samræmi við persónuverndar- og upplýsingaöryggisstefnu félagsins.
Framtíðarsýn Strætó bs. hefur ávallt verið að vera fyrirmyndarvinnustaður sem laðar að sér hæft starfsfólk og styður við faglega þróun þess. Félagið leggur áherslu á að byggja upp þekkingu og styrkja fagmennsku með það að markmiði að bæta þjónustu og mæta þörfum samfélagsins.
Ljóst er að vegna breytinga á skipulagi almenningssamganga mun starfsemi Strætó verða lögð niður innan þriggja ára. Á þessu tímabili verður lögð sérstök áhersla á að hlúa að starfsfólki og tryggja stuðning á tímum mikilla breytinga. Með gagnsæjum samskiptum, reglulegri upplýsingagjöf og virku samtali við starfsfólk um stöðu mála og framtíðarmöguleika þess viljum við koma til móts við starfsfólk okkar.
Strætó mun áfram leggja ríka áherslu á vellíðan starfsfólks með heiðarleika og virðingu í forgrunni. Með markvissum aðgerðum í mannauðsmálum er stefna okkar að viðhalda sterkri liðsheild, fagmennsku og jákvæðu starfsumhverfi, allt til loka starfseminnar.
Í desember 2025 störfuðu 275 manns hjá Strætó, þar af 23% konur og 77% karlar. Meðalaldur starfsfólks er 47 ár.
Markviss fræðsla er ein af grunnstoðum þess að styðja og efla starfsfólk. Með því að bjóða upp á fjölbreytta fræðslu og þjálfun viljum við skapa starfsumhverfi þar sem hver og einn hefur tækifæri til að þróast, vaxa og öðlast aukna færni. Við trúum því að öflug og skilvirk fræðsla skili sér ekki aðeins í betri þjónustu og faglegri vinnubrögðum heldur einnig í aukinni starfsánægju, jákvæðari vinnustaðamenningu og ekki síst í öryggi starfsfólks.
Fræðsluáherslur ársins voru í takt við þarfir starfsfólks og áskoranir, en sérstaklega var unnið að því að efla samskipti og þjónustu. Allir stjórnendur og starfsfólk í framlínu sóttu þjónustuþjálfun á árinu auk vagnstjóra verktaka. Í þjálfuninni var lögð áhersla á að tengja við tilgang starfsins, skilning gagnvart farþegum og líðan í starfi og var mikil ánægja með þjálfunina meðal starfsfólks. Að auki var lögð áhersla á fræðslu um vinnuverndarmál en meirihluti starfsfólks sótti námskeið um EKKO (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundið áreiti og ofbeldi).
Á árinu 2025 voru alls haldnar 3.305 fræðslustundir fyrir starfsfólk Strætó bs. Alls fóru fram 342 klukkustundir í endurmenntun vagnstjóra, þar af 59 klukkustundir í gegnum appið Bara tala, og 1.800 klukkustundir í nýliðaþjálfun. Önnur fræðsla taldi 1.104 stundir og felst í henni m.a. þjónustunámskeið, fræðsla um vinnuverndar- og jafnréttismál, ráðstefnur, vinnustofur og starfsþróunarnámskeið.
Alls voru 26 starfsmenn ráðnir til fyrirtækisins á árinu, inn í þeim fjölda eru einnig sumarráðningar.
Heildarstarfsmannavelta árið 2025 var 6,6%.

Strætó leggur áherslu á að skapa starfsfólki jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi, efla starfsfólk og stuðla að virkni og ánægju þess. Allt starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð á að skapa jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem gagnkvæm virðing og starfsánægja er í fyrirrúmi.
Frá árinu 2023 hefur Strætó framkvæmt reglulegar púlsmælingar Moodup á starfsánægju. Starfsmenn svara stuttri könnun með því að smella á hlekk í sms skilaboðum eða tölvupósti. Starfsánægja mældist 7,6 af 10 mögulegum á árinu 2025.
Strætó hlaut viðurkenningu Moodup fyrir að vera vinnustaður í fremstu röð fyrir árið 2025. Það er ánægjulegt þar sem Strætó hefur hlotið viðurkenninguna samfellt frá því að Moodup-kerfið var tekið upp í lok árs 2023, eða árin 2024 og nú 2025. Viðurkenningin er veitt þeim vinnustöðum sem sýna í verki að þeir hugsa vel um starfsfólk sitt og tryggja því framúrskarandi starfsumhverfi með því að uppfylla þessi skilyrði: mæla starfsánægju a.m.k. einu sinni á ársfjórðungi, bregðast við endurgjöf sem starfsfólk skrifar og ná árangursviðmiði um starfsánægju samanborið við aðra íslenska vinnustaði.
Strætó var á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2025. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) og er ætlað að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar. Markmiðið er að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Kynjahlutfall í stjórn Strætó er 50/50 en 55/45 í framkvæmdastjórn. Hlutfall kynja meðal allra stjórnenda innan stofnunarinnar er 60/40.

Strætó leggur áherslu á andlega, líkamlega og félagslega heilsu starfsfólks.
Strætó hefur mótað viðverustefnu sem hefur það að markmiði að draga úr fjarvistum vegna veikinda og styðja og hlúa að starfsfólki vegna fjarveru frá vinnu til lengri eða skemmri tíma með markvissum aðgerðum. Þá er áhersla lögð á að samræma verkferla vegna fjarvista, auka velferð og stuðla að vellíðan starfsfólks.
Strætó er í góðu samstarfi við Vinnuvernd sem sinnir ráðgjöf til starfsmanna í veikindum, trúnaðarlæknaþjónustu og fræðslu. Vinnuvernd framkvæmir árlegar heilsufarsskoðanir og bólusetningar gegn inflúensu fyrir þá starfsmenn sem vilja og eru þær starfsfólki að kostnaðarlausu.
Strætó er heilsueflandi vinnustaður og vill skapa vinnuumhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan alls starfsfólks. Það er í samræmi við markmið tilraunaverkefnis sem Strætó tók þátt í með Landlæknisembættinu, Virk og Vinnueftirlitinu árið 2020. Strætó hefur haldið áfram að vinna út frá markmiðum verkefnisins og lagt sérstaka áherslu á að minnka streitu og álag í starfsumhverfinu. Strætó býður til dæmis starfsmönnum reglulega upp á fræðslutengd erindi, auk þess sem öllu fastráðnu starfsfólki býðst árlegur íþróttastyrkur.
Strætó og VÍS eru í góðu samstarfi um fræðslu og forvarnir. Meginmarkmið samstarfsins er að fækka tjónum og slysum. Frá árinu 2021 hefur verið lögð áhersla á að auka fræðslu og forvarnir vegna álags og streitu því þeir þættir geta haft töluverð áhrif á fjölda slysa og tjóna í umferðinni.
Starfsfólk Strætó tekur árlega virkan þátt í heilsueflingarátökum á borð við Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna.
Á síðustu misserum hefur Strætó bs. lagt aukna áherslu á velferð starfsfólks og mikilvægi þess að bregðast tímanlega við þegar álag eða veikindi hafa áhrif á viðveru í starfi. Í því samhengi var viðverustefna fyrirtækisins endurskoðuð og uppfærð.
Markmið breytinganna er fyrst og fremst að styðja betur við starfsfólk og tryggja að samtal um líðan, álag og heilsu eigi sér stað fyrr í ferlinu. Með skýrari ramma um viðveru gefst stjórnendum og starfsfólki betra tækifæri til að grípa inn í með stuðningi eða úrræðum áður en aðstæður þróast á óæskilegan hátt.
Öryggi starfsmanna, farþega og almennings er mikilvægt leiðarljós í starfi Strætó og er lögð áhersla á að efla öryggismenningu.
Þar skiptir máli að hafa reglulega fræðslu og endurmenntun fyrir starfsfólk enda um langtímaverkefni að ræða sem stöðugt þarf að fylgja eftir. Strætó hefur unnið með VÍS að verkefnum sem miðar að því að auka öryggisvitund starfsmanna og að lágmarka slys og tjón sem hægt er að afstýra með beinum hætti.
Heildarfjöldi slysa á síðasta ári voru 18 talsins og tilkynnt slys til tryggingafélags voru 3, en þess má geta að Strætó hefur ekki upplýsingar um slys sem tilkynnt eru til annarra tryggingafélaga. Slys sem tilkynnt eru til tryggingafélags teljast þau slys sem sannarlega hafa orðið að trygginga máli og teljast mögulega bótaskyld. Strætó tekur þó á móti tilkynningum og ábendingum um ýmis slys í gegnum ábendingakerfi sitt og fylgir þeim eftir.
Skráð vinnuslys hjá Strætó á árinu 2025 voru 11. Strætó vill lágmarka slys og sporna við slysahættu hvar sem er í starfsemi fyrirtækisins með fræðslu og forvörnum.
| Ár | Heildarfjöldi vinnuslysa |
|---|---|
2022 | 5 |
2023 | 14 |
2024 | 9 |
2025 | 11 |
Hjá Strætó er starfandi öryggisnefnd samkvæmt 6. grein laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Starfsmenn kjósa úr sínum hópi tvo fulltrúa og Strætó tilnefnir tvo fulltrúa. Nefndin hittist reglulega, fer yfir og ræðir aðbúnað, hollustuhætti og aðbúnað innan fyrirtækisins.
Strætó er í góðu samstarfi við VÍS um skráningu atvika, slysa og tjóna og notast við atvikaskráningakerfið ATVIK í boði VÍS. Þar er hægt að senda inn ábendingar um öryggismál, s.s. næstum slys, minni háttar slys, fjarveruslys og ógn (ofbeldi, áreitni og kynferðislega áreitni).
Strætó er fyrirtæki sem er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Kjaramál starfsmanna taka því mið af lögum sem gilda um starfsfólk sveitarfélaga, 57. gr. sveitarstjórnarlaga 2011 nr. 138.
Kjör starfsfólks eru samþykkt í kjarasamningum sem Strætó gerir við Sameyki stéttarfélag og Samiðn, samband iðnfélaga. Þá hefur Strætó gert ráðningarsamninga við einn starfsmann um aðild í öðru stéttarfélagi en ávallt með vísan í kjarasamning viðkomandi félags við Reykjavíkurborg. Strætó virðir réttindi launafólks og fylgir lögum og reglum sem um þau gilda.
Starfsfólk er ýmist ráðið tímabundið eða fastráðið, allt eftir eðli og umfangi starfa.

Strætó er stolt af því að vera fjölmenningarfyrirtæki. Hjá Strætó starfar fólk af 32 mismunandi þjóðernum.
Strætó leggur áherslu á fjölbreytileika, að komið sé eins fram við alla og að öllum séu veitt jöfn tækifæri. Fjölbreyttum hópi starfsfólks fylgir aukin ábyrgð í tengslum við upplýsingaflæði og fræðslu. Allar upplýsingar eru aðgengilegar á nokkrum tungumálum. Starfsfólki hefur verið boðið upp á íslenskunám frá 2014 og íslenskuappið Bara tala var innleitt árið 2024. Þjálfunar- og fræðslufulltrúar bera ábyrgð á þjálfun starfsfólks, þessi hópur er fjölþjóðlegur, sem hefur reynst vel í þjálfunarstarfinu. Hópurinn er endurnýjaður á tveggja ára fresti til að veita sem flestum tækifæri til að sækja um og þróast í starfi. Reglulegir upplýsingafundir eru haldnir bæði á íslensku og ensku. Í mörg ár hefur Strætó einnig verið með starfsmenn með fötlun í vinnu með viðeigandi stuðningi.
Undanfarin ár hefur Strætó tekið þátt í evrópsku fræðslu- og starfsþróunarverkefni en markmið þess er að þróa fræðsluefni um inngildingu og fjölbreytileika fyrir starfsfólk almenningssamgangna. Námsefnið verður aðgengilegt í sýndarveruleika og tölvuleik en fyrirhuguð lok verkefnisins verða í júní 2026. Verkefnið byggir á grunni Erasmus+ verkefnisins sem hófst árið 2020 og Strætó tók þátt í, en einn hluti þess verkefnis var að nýta sýndarveruleika í þjálfun vagnstjóra við ógnandi aðstæður.
Strætó hefur sett sér jafnréttis- og jafnlaunastefnu. Markmið jafnlaunastefnu er að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Í samræmi við jafnréttisstefnu Strætó skal þess gætt við ákvörðun launa og fríðinda að ekki sé mismunað á grundvelli kyns eða annarra ómálefnalegra þátta, samanber lög nr. 150/2020 um jafnan rétt kynjanna og lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Strætó hlaut jafnlaunavottun í október 2019, endurvottun árin 2022 og 2025 sem staðfestir að fyrirtækið starfrækir jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur staðalsins ÍST 85:2012 Jafnlaunakerfi- Kröfur og leiðbeiningar. Samkvæmt kröfum staðalsins framkvæmir Strætó reglulega launagreiningar. Árið 2025 var launamunur grunnlauna karla og kvenna 0,6% þar sem hallar á karla, þ.e. konurnar voru hærri.
Strætó leggur áherslu á að koma til móts við óskir og þarfir starfsfólks til töku fæðingarorlofs. Árið 2025 fóru alls 14 starfsmenn í fæðingarorlof, 11 karlar og 3 konur.