Sjálfbærniskýrsla Strætó 2025Árið 2025

Ávarp stjórn­ar­formanns

Árið 2025 var tímamótaár í þróun almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Samgöngusáttmáli ríkis og sveitarfélaga er kominn í innleiðingu og felur í sér aukna aðkomu ríkisins, þjónustuaukningu og stofnun nýs félags sem mun taka yfir lykilhlutverk í skipulagi almenningssamgangna. Strætó stendur á tímamótum og fram undan eru bjartir tímar á sviði almenningsamgangna. 

Framtíð almenningssamgangna á Íslandi er björt. Við erum með öflugan samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem náð hefur verið saman um úrbætur í vegakerfinu, ótrúlega eflingu hjólreiðainnviða, snjallstýringa á umferðarljósum og innleiðingu hágæða almenningssamgangna í sérrými: Borgarlínu. 

Það hefur ekki gengið áfallalaust að lenda öllu því sem lenda þurfti, en nú liggur samkomulag fyrir og er í fullri innleiðingu. Það er í fyrsta sinn í langan tíma spennandi að vera íbúi á höfuðborgarsvæðinu sem vill búa við góðar samgöngur. 

Einmitt vegna þessa var árið 2025 stórt ár fyrir Strætó bs. Kannski viðburðaríkasta ár frá stofnun byggðasamlagsins. 

Stóra málið er auðvitað framtíð byggðasamlagsins, í samræmi við samgöngusáttmálann, innkoma ríkisins, tilheyrandi þjónustuaukning og nýja félagið, Almenningssamgöngur Höfuðborgarsvæðins ohf.  

Á árinu 2024 var gengið frá því hvernig kostnaði yrði skipt milli ríkis og sveitarfélaga og hvernig fyrirkomulagið yrði í grunninn og hvernig kostnaður við rekstur Borgarlínu og annarra strætisvagna skiptist á milli aðila. Á árinu 2025 var unnið að undirbúningi og nánari útfærslu. Nú eru komnir fullbúnir samningar sem eru í samþykktarferli hjá sveitarfélögunum: annars vegar þjónustusamningur milli ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og ríkis og hins nýja félags hins vegar, og hins vegar samstarfssamningur milli Strætó bs. og hins nýja félags. 

Í samkomulaginu felst að ríkið kemur inn með 33% kostnaðarþátttöku í rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, í gegnum nýja félagið, á móti 67% framlagi sveitarfélaganna. Það er mikilvægt og nauðsynlegt skref til þess að fara í nauðsynlega þjónustuaukningu og innleiðingu á Borgarlínu.  

Samkomulagið gerir ráð fyrir því að stór hluti verkefna Strætó bs. flytjist yfir til Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. Þar með talið leiðakerfi, stjórnstöð, miðasala og annað sem telst hluti af því að vera yfirumsjón með almenningssamgöngum. (e. Public transport authority), en það verkefni að keyra vagna og sjá um viðhald á þeim (e. Public transport operator) verður áfram hjá Strætó bs. á meðan undirbúið er að bjóða þann akstur út, en að því loknu verði Strætó bs. lagt niður. Gert er ráð fyrir að það útboð og frágangur taki á bilinu tvö og hálft til þrjú ár. 

Þannig var árið 2025 síðasta starfsár byggðasamlagsins í þeirri mynd sem það hefur verið frá stofnun þess árið 2001. Það eru tímamót og ekki laust við að alls konar tilfinningar fylgi því að vera í forystu á meðan þetta er útfært. 

En þessi umskipti eru ekki einu stóru fréttir ársins 2025. 

Þjónustuaukningin sem ráðist var í í ágúst 2025 hefur mælst vel fyrir, en þá var tíðni margra af mest notuðu leiðum í kerfinu aukin í 10 mínútur á annatíma og annarra leiða aukin í 15 mínútur, auk þess sem þjónustutími leiða var lengdur. Þetta hefur leitt til töluverðrar aukningar í notkun og aukinnar ánægju notenda. Nú búa um 50% íbúa höfuðborgarsvæðisins í 400 fjarlægð eða minna frá stoppistöð þar sem leið keyrir á 10 mínútna fresti, en markmiðið er að með Borgarlínu og samgöngusáttmála náist það hlutfall upp í 70% fyrir árið 2040. 

Við tókum líka upp snertilausar greiðslur á árinu sem hafa mælst mjög vel fyrir, og gera fólki auðveldara að nýta Strætó. Sérstaklega hentar það ferðafólki betur, en í samhengi við þessa breytingu var hægt að innleiða nýtt og einfaldara afsláttarkerfi, sem einfaldlega rukkar ekki fyrir meira en svo og svo margar ferðir á dag og/eða viku. 

Við hættum á árinu að taka við reiðufé í vögnum, en þrátt fyrir töluverðar áhyggjur af því að það myndi skapa vanda, höfum við ekki séð merki um það og bæði íbúar og ferðafólk virðist eiga auðvelt með að greiða með appi, snertilaust, eða með Klapp kortum. Það er mjög ánægjulegt að sjá og einfaldar töluvert utanumhald. 

Fjárhagslega er niðurstaðan ágæt, afkoma félagsins er jákvæð og handbært fé er nægilegt, en eigið fé er enn neikvætt. Tekjur eru undir áætlun, en það helgast af því að þjónustuaukningin fór seinna af stað en stefnt var að. Einnig voru áhrif lífeyrisskuldbindinga á rekstrarniðurstöðu Strætó þó nokkur. 

Þetta hefur verið einstaklega áhugavert tímabil til þess að gegna stjórnarformennsku hjá Strætó bs. Verkefnin hafa verið gífurlega stór og fela í sér eðlisbreytingu á starfseminni. Ég hef gert mitt besta til þess að vinna þau verkefni vel sem sneru að mér og beita mér fyrir farsælli lausn þeirra. En ég vil þakka starfsfólki, stjórnendum, stjórnarfólki, fulltrúum ríkisins, sveitarfélaganna og Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, nýrri stjórn og stjórnendum Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins og öðrum sem að þessu hafa komið fyrir ótrúlega gott og öflugt starf, við flóknar aðstæður. 

Alveg sérstaklega á starfsfólk, stjórnendur og stjórn Strætó bs. þakkir skyldar fyrir þolinmæði, jákvæðni og fagmennsku á tímabili sem einkennst hefur af breytingum og óvissu. Það er ekki sjálfgefið, og ég er þakklát fyrir það hversu góðan hóp við höfum þar. 

Takk fyrir samstarfið. 

Alexandra Briem, stjórnarformaður


Ávarp fram­kvæmda­stjóra

Árið 2025 markaði tímamót í rekstri Strætó með nýju samkomulagi ríkis og sveitarfélaga og breyttri verkaskiptingu í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þjónustuaukning Strætó skilaði góðum árangri og aukinni notkun á Strætó en árið einkenndist jafnframt af framförum í greiðslulausnum, orkuskiptum og þróun leiðanets. Ljóst er að Strætó stendur á tímamótum, þar sem nýtt skipulag og félag tekur við starfseminni innan tíðar.

Jóhannes Svavar Rúnarsson Framkvæmdastjóri Strætó
Jóhannes Svavar Rúnarsson Framkvæmdastjóri Strætó

Árið 2025 var fyrsta árið sem rekstur Strætó var samkvæmt samkomulagi um rekstur almenningssamgangna milli ríkis og sveitarfélaga Strætó. Skipting framlaga til rekstrar Strætó á því ári var 67% frá aðildarsveitarfélögum og 33% frá ríkinu. Gert hafði verið ráð fyrir því að farið yrði í mikla þjónustuaukningu í byrjun árs en í ljósi tæknilegra og lögfræðilegra mála sem þurfti að leysa frestaðist þjónustuaukningin til miðs ágúst 2025. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að Strætó verði skipt upp í tvö félög, annað sem sér um skipulagningu leiðakerfisins, þjónustu við viðskiptavini og almennt þau verkefni sem snúa að stýringu leiðanetsins án aksturs og hitt sem sér um akstur þeirra leiða sem Strætó hefur ekið. Útfærslan hefur verið í höndum stýrihóps en í honum eiga sæti þrír fulltrúar aðildarsveitarfélaga Strætó og fulltrúar frá ríkinu. Verkefnið er flókið og viðamikið og er enn verið að leggja lokahönd á útfærsluna. Gert er ráð fyrir að nýtt félag Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. taki að fullu við sínum hluta þann 1. maí 2026.  

Jafnframt er vert að geta þess að þetta er síðasta starfsár Strætó í þeirri mynd sem lagt var upp með árið 2001 þegar Strætó bs. var stofnað.   

Þjónustuaukningin sem kom til framkvæmda í ágúst 2025 hefur fengið mjög góð viðbrögð viðskiptavina og er almenn ánægja með hana. Þetta sýnir okkur að tíðni hefur mikið vægi í huga viðskiptavina og fleiri velja að nota almenningssamgöngur í dag enda hefur orðið aukning á notkun á Strætó. Tekjur ársins voru um 4% undir áætlun en í tekjuáætlun fyrir árið var gert ráð fyrir að þjónustuaukningin kæmi til framkvæmda í byrjun árs. Við hjá Strætó erum því gríðarlega ánægð með þau góðu viðbrögð sem þjónustuaukningin fékk. Eftir hana eru fimm leiðir komnar á 10 mínúta tíðni á annatíma,  það er lengri þjónustutími og fleiri leiðir komnar á 15 mínútna tíðni allan daginn eða á annatíma. Eftir breytingu búa um 50% íbúa á höfuðborgarsvæðinu innan 400 metra radíus frá stoppistöð með leið á 10 mínútna tíðni á annatíma. Markmið nýs hágæðaalmenningssamgöngukerfis er að þetta hlutfall verði um 70% fyrir árið  2040. 

Greiðslumáti sem kynntur var undir lok árs 2024 og er kominn að fullu til framkvæmda, snertilausar greiðslur, hefur fengið frábærar viðtökur og er notkun á þessum greiðslumáta í stöðugum vexti. Þetta er einfaldur og þægilegur greiðslumáti, hentar öllum vel og auðveldar erlendum ferðamönnum að nýta sér almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Á miðju ári var síðan hætt að taka við peningum sem greiðslumáta inn í vögnunum og virðist sú breyting ekki hafa haft nein áhrif á viðskiptavini sem virðast hafa nýtt sér snertilausar greiðslur í staðinn.  

Eitt af hlutverkum Strætó í eigendastefnu þess er að byggja upp hagkvæmt leiðanet og hefur það í gegnum tíðina verið gert með stofnleiðum, almennum leiðum þ.m.t. pöntunarleiðum. Þannig hefur Strætó náð að þjónusta stóran hluta höfuðborgarsvæðisins með leið sem sniðin er að íbúafjölda og fjölda farþega á ferðinni. Nauðsynlegt er í náinni framtíð að setja nánari viðmið um þjónustustig á höfuðborgarsvæðinu þannig að  fyrirsjáanleiki sé til staðar fyrir íbúa og viðskiptavini þjónustunnar. 

Orkuskipti í rekstri Strætó hafa verið í forgrunni undanfarin ár og setti stjórn Strætó sér það markmið árið 2018 að allir vagnar yrðu kolefnislausir fyrir árslok 2029. Fyrstu skrefin voru tekin árin 2018 og 2019 þegar rafvæðing flotans hófst með 14 rafvögnum. Í dag er staðan þannig að um 40 vagnar ganga fyrir rafmagni og gert er ráð fyrir að þeim fjölgi á þessu ári og að markmiðið náist fyrir 2030. Samhliða þessu hefur Strætó boðið út uppsetningu hleðsluinnviða fyrir vagnaflotann og gert ráð fyrir að uppbygging skv. því hefjist á árinu 2026. Mikilvægur þáttur í orkuskiptum strætisvagna er að stuðningur stjórnvalda sé fyrirsjáanlegur og þekktur, styrkir Orkusjóðs á árinu 2025 nema allt að 30 milljónum króna per vagn og jafnframt hefur Strætó fengið vilyrði fyrir myndarlegum styrk við uppbyggingu hleðsluinnviða. Er það von mín að um áframhaldandi stuðning verði að ræða þar til markmiðum um kolefnishlutleysi hefur verið náð árið 2030. 

Fjárhagsleg niðurstaða Strætó fyrir árið 2025 er ásættanleg, en afkoman er jákvæð, handbært fé er viðunandi en eigið fé er enn neikvætt. Tekjur og gjöld eru undir áætlun, sem skýrist af mestu af því að þjónustuaukning kom síðar til framkvæmda en áætlað var. Áhrif lífeyrisskuldbindinga hefur áhrif á rekstrarniðurstöðu Strætó og er brýnt að stjórnvöld setji einhver mörk eða skýrari reglur um afkomu sjóða sem opinberir starfsmenn greiða í. 

Strætó gerir reglulega púlsmælingar á starfsánægju hjá starfsmönnum sínum og er niðurstaðan með ágætum. Það hefur reynst vel að fara úr stórum árlegum könnunum yfir í púlsmælingar. Reglulega eru gerðar þjónustumælingar, í spurningavagni, á notendum þjónustu Strætó og rýnihópum. Niðurstöður eru nýttar til umbóta fyrir almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.

Strætó rekur fyrir fjögur sveitarfélög Pant, akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og fötluð skólabörn. Sá samningur rennur út um mitt ár 2027 og er í skoðun hjá viðkomandi sveitarfélögum hvernig framtíðarfyrirkomulag þjónustunnar verður.  Rekstur Pant hefur almennt gengið skv. áætlun og sýna viðhorfskannanir sem gerðar hafa verið meðal viðskiptavina hennar að almenn ánægja er með þjónustustigið.  

Að öllu framansögðu er ljóst að nýtt félag tekur við góðu búi og vel markaðri stefnu í orkuskiptum og þjónustu og er ljóst að fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins eru spennandi tímar fram undan. Með markvissri uppbyggingu sérakreina, forgangi á umferðarljósum, meiri tíðni, einfaldari gjaldskrá og stefnufestu stjórnvalda munu almenningssamgöngur í framtíðinni verða einn besti valkostur á höfuðborgarsvæðinu í vali á samgöngumáta.  

Ég vil að lokum þakka öllum starfsmönnum fyrir frábær störf og þolinmæði og biðlund í þeim miklu breytingum sem gerðar verða á skipulagi almenningssamgangna í framtíðinni og óska öllum velfarnaðar á komandi árum.  

 

 


Stjórn­ar­hætt­ir

Góðir stjórnarhættir hjá Strætó bs. eiga að tryggja fagmennsku, gagnsæi og ábyrga stjórnun sem styður við sjálfbæra starfsemi félagsins. 

Stjórn Strætó bs. birtir árlega yfirlýsingu um stjórnarhætti sem er hluti af ársreikningi félagsins. Stjórnarhættir taka til hlutverka og ábyrgðar stjórnar og stjórnenda, sem og þess hvernig ákvörðunartaka fer fram, í samræmi við gildandi lög og reglur. 

Stjórnarhættir byggðasamlagsins grundvallast á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, lögum um farþegaflutninga og stofnsamningi félagsins, auk eigendastefnu þess. Í stjórnarháttum felst jafnframt skýr ábyrgð á stefnumótun, eftirliti, áhættustýringu og innra eftirliti. 

Stjórn fer með yfirstjórn félagsins og ber ábyrgð á því að starfsemin sé í samræmi við markmið, eigendastefnu og kröfur um ábyrga stjórnun. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur í samræmi við stefnu og ákvarðanir stjórnar. 

Strætó bs. starfar samkvæmt siðareglum sem leggja áherslu á heiðarleika, gagnsæi og ábyrga ákvarðanatöku í allri starfsemi félagsins. Siðareglur eru kynntar starfsmönnum og stjórnendum og eru hluti af daglegum starfsháttum. Stjórn og framkvæmdastjórn bera ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgni þeirra og hafa eftirlit með því að þær séu virtar. 


Hlut­verk Strætó

Hlutverk Strætó bs. er að veita aðgengilega, hagkvæma og umhverfisvæna almenningssamgönguþjónustu sem styður við sjálfbæra þróun samfélagsins. 

Strætó bs. er þjónustufyrirtæki á sviði almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og starfar á grundvelli laga, eigendastefnu og þjónustusamninga við aðildarsveitarfélög. 

Helstu hlutverk Strætó eru: 

  • Rekstur almenningssamgangna – Skipuleggja og reka strætisvagnaþjónustu fyrir íbúa og gesti með áherslu á áreiðanleika og þjónustugæði.  
  • Samfélagsleg ábyrgð – Tryggja jafnt aðgengi að þjónustu óháð búsetu, aldri eða aðstæðum og stuðla að öruggu ferðaumhverfi.  
  • Umhverfisvænar samgöngur – Draga úr umhverfisáhrifum með orkuskiptum, vistvænum orkugjöfum og markvissum aðgerðum í loftslagsmálum.  
  • Samstarf við sveitarfélög – Þróa og aðlaga þjónustu í samráði við eigendur með hliðsjón af þörfum samfélagsins.  
  • Nýsköpun og tækni – Innleiða stafrænar lausnir sem bæta aðgengi, greiðslukerfi og upplýsingagjöf til farþega.  

Markmið Strætó bs. hefur ávallt verið að auka notkun almenningssamgangna og stuðla að sjálfbærum samgöngum með öruggri, aðgengilegri og áreiðanlegri þjónustu, skilvirkum rekstri og ábyrgri nýtingu fjármuna. 

Hlutverk Strætó mun breytast á árinu 2026 með breyttri verkaskiptingu í almenningssamgöngum. Strætó verður framkvæmdaraðili sem annast akstur samkvæmt samningum, á meðan stefnumótun og skipulag færist yfir í nýtt félag.

 


Stjórn­skipu­lag Strætó bs.

Strætó bs. er byggðasamlag í eigu sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavíkurborgar, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. 

Stjórn Strætó bs. fer með yfirstjórn byggðasamlagsins í samræmi við lög, reglur, stofnsamning og eigendastefnu félagsins. Stjórnin ber ábyrgð á stefnumótun, eftirliti með starfsemi og því að rekstur sé í samræmi við markmið félagsins. Jafnframt hefur stjórnin eftirlit með áhættustýringu, innra eftirliti og helstu sjálfbærniþáttum starfseminnar. 

Stjórnin samanstendur af sex fulltrúum sem kosnir eru af sveitarstjórnum aðildarsveitarfélaganna til tveggja ára í senn, ásamt sex varafulltrúum til jafnlangs tíma. 

Formennska í stjórn gengur milli fulltrúa aðildarsveitarfélaganna og gegnir hver formaður embætti í tvö ár í senn. Atkvæðavægi stjórnarmanna er endurskoðað árlega og byggist á íbúafjölda aðildarsveitarfélaganna 1. desember næstliðins árs. 

Stjórnarmenn og varafulltrúar skulu uppfylla hæfniskröfur sveitarstjórnarlaga og rækja störf sín af fagmennsku og ábyrgð. Viðmið um hagsmunaárekstra eru í gildi og ber stjórnarmönnum að upplýsa um mögulega hagsmuni og víkja frá meðferð mála eftir því sem við á. 

Stjórnarfundir eru haldnir að lágmarki mánaðarlega og oftar ef þörf krefur. Árið 2025 voru haldnir 18 fundir og eru fundargerðir aðgengilegar á heimasíðu Strætó bs. 

Stjórn Strætó bs. framkvæmir árlegt árangursmat á störfum sínum með það að markmiði að efla faglega stjórnarhætti og bæta skilvirkni. 

Starfskjaranefnd, sem skipuð var árið 2024, hefur það hlutverk að móta og yfirfara stefnu félagsins um starfskjör stjórnenda og lykilstarfsmanna í samræmi við góða stjórnarhætti. 

Stjórn Strætó 2025

  • Alexandra Briem, formaður – Reykjavíkurborg, Pírötum
  • Andri Steinn Hilmarsson, varaformaður – Kópavogi, Sjálfstæðisflokki
  • Magnús Örn Guðmundsson – Seltjarnarnesi, Sjálfstæðisflokki
  • Kristín Thoroddsen – Hafnarfirði, Sjálfstæðisflokki
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson – Garðabæ, Sjálfstæðisflokki
  • Lovísa Jónsdóttir – Mosfellsbæ, Viðreisn

Varamenn í Stjórn Strætó

  • Hjördís Ýr Johnson, Kópavogi
  • Björg Fenger, Garðabæ
  • Örvar Jóhannsson, Mosfellsbæ
  • Ragnhildur Jónsdóttir, Seltjarnarnesi
  • Margrét Vala Marteinsdóttir, Hafnarfirði
  • Kristinn Jón Ólafsson, Reykjavík

Framkvæmdastjórn Strætó


Lög, reglur og tilmæli

Strætó bs. starfar í samræmi við gildandi lög og reglur, þar á meðal sveitarstjórnarlög nr. 138/2011, lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017 og reglugerðir settar á grundvelli þeirra, auk eigendastefnu félagsins. 

Í stofnsamningi Strætó bs., meðal annars í köflum 2 og 3, er kveðið á um stofnendur, eignarhald og stjórnskipulag félagsins. Samkvæmt eigendastefnu skulu stjórnarhættir byggja á fagmennsku, hagkvæmni, gagnsæi og ábyrgð í rekstri. 

Stjórnarmenn skulu í störfum sínum fylgja lögum, eigendastefnu og starfsreglum stjórnar, gæta almannahagsmuna og hagsmuna byggðasamlagsins. Eigendastefna og helstu reglur eru aðgengilegar á heimasíðu Strætó bs. 

Framsetning stjórnarhátta tekur mið af leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands, Nasdaq Iceland hf. og Samtökum atvinnulífsins (6. útgáfa, 2021), með þeim frávikum sem leiða af eðli byggðasamlags. 

Strætó bs. hefur sett sér starfsreglur, siðareglur og stefnumörkun sem styðja við ábyrga stjórnun, gagnsæi og samræmi við lög og reglur. Stefnurnar mynda ramma fyrir ákvarðanatöku, daglegan rekstur og eftirfylgni með markmiðum félagsins. 

Stefnurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Strætó bs. og eru endurskoðaðar reglulega til að tryggja að þær taki mið af breytingum í rekstrarumhverfi, kröfum hagsmunaaðila og þróun í lögum og alþjóðlegum viðmiðum. 

Ábyrgð á innleiðingu stefna liggur hjá framkvæmdastjórn en stjórn hefur eftirlit með framfylgd þeirra. 


Innra eft­ir­lit og áhættu­stjórn­un

Innra eftirlit

Stjórn Strætó bs. ber ábyrgð á að til staðar sé virkt, formlegt og skjalfest kerfi innra eftirlits sem er reglulega yfirfarið og sannreynt. 

Innra eftirlit stuðlar að öruggum og skilvirkum rekstri, dregur úr áhættu og styður við að starfsemi félagsins sé í samræmi við lög, reglur og stefnu. Það felur meðal annars í sér reglubundið eftirlit með starfsemi, greiningu frávika og eftirfylgni með úrbótum. 

Við uppbyggingu og framkvæmd innra eftirlits er stuðst við COSO ramma, sem er alþjóðlega viðurkenndur staðall um innra eftirlit og áhættustýringu. 

Áhættustjórnun

Áhættustýring er kerfisbundið ferli sem miðar að því að greina, meta og bregðast við þeim þáttum sem geta haft áhrif á markmið og starfsemi Strætó bs. 

Strætó bs. framkvæmir reglulega áhættumat þar sem helstu áhættuþættir eru greindir, metnir og forgangsraðað. Í framhaldi eru skilgreindar aðgerðir til að draga úr áhrifum áhættu og tryggja viðeigandi viðbrögð. Áhættustýring er samþætt daglegum rekstri og stefnumótun félagsins. 

Helstu áhættuflokkar Strætó bs. eru: 

  • Fjárhagsleg áhætta: Sveiflur í tekjum og kostnaði, þar á meðal fargjaldatekjur og opinber framlög, geta haft áhrif á fjárhagsstöðu félagsins.  
  • Rekstraráhætta: Truflanir á þjónustu, bilanir í ökutækjum eða skortur á starfsfólki geta haft áhrif á þjónustugæði og áreiðanleika.  
  • Löggjafar- og reglugerðaráhætta: Breytingar á lagaumhverfi geta haft áhrif á rekstrarskilyrði og kröfur til starfseminnar.  
  • Markaðsáhætta: Breytingar á ferðavenjum, samkeppni eða íbúasamsetningu geta haft áhrif á eftirspurn eftir þjónustu.  
  • Orku- og umhverfisáhætta: Breytingar á orkuverði og aðgengi að orkugjöfum geta haft áhrif á rekstur og umhverfismarkmið félagsins.  

Á árinu 2025 var sérstök áhersla lögð á áhættu sem tengist breytingum á starfsemi félagsins, þar á meðal stöðu vagnaflota og mannauðsmálum. Aldur vagnaflota og takmarkaðar fjárfestingar geta haft áhrif á rekstraröryggi, á meðan óvissa um framtíðarskipulag getur haft áhrif á mönnun og þekkingu innan félagsins. 

Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á innleiðingu og eftirfylgni áhættustýringar en stjórn hefur eftirlit með því að kerfið sé virkt og reglulega yfirfarið. 

Strætó bs. leggur áherslu á virka áhættustýringu sem styður við öruggan, skilvirkan og ábyrgan rekstur og eykur viðnámsþrótt félagsins gagnvart breytingum í rekstrarumhverfi. 

Endurskoðunarnefnd 

Endurskoðunarnefnd Strætó bs. er sú sama og hjá stærsta eiganda félagsins, Reykjavíkurborg, og starfar á grundvelli laga nr. 3/2006 um ársreikninga, sbr. IX. kafla A laganna, og samþykkta frá 10. júlí 2014. 

Strætó bs. veitir nefndinni reglulega upplýsingar um rekstur, fjárhagsstöðu, áhættustýringu og innra eftirlit. Félagið er í virku og reglubundnu samráði við nefndina og eru málefni þess tekin til umfjöllunar eftir því sem við á. 

Hlutverk endurskoðunarnefndar er að hafa eftirlit með reikningshaldi, fjárhagsupplýsingum og innra eftirliti félagsins. Nefndin fer yfir ársreikning og fjármálaupplýsingar til að tryggja að þær séu í samræmi við lög og góða reikningsskilavenju. Jafnframt metur nefndin skilvirkni áhættustýringar og innri stjórnunarkerfa með það að markmiði að efla gagnsæi og traust í starfsemi félagsins. 

Endurskoðunarnefnd er skipuð fjórum fulltrúum, þar af þremur skipuðum af borgarstjórn Reykjavíkurborgar og einum tilnefndum af stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Í nefndinni sitja Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi og formaður, Sigrún Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi, Einar S. Hálfdánarson, héraðsdómslögmaður og löggiltur endurskoðandi (réttindi óvirk), og Sunna Jóhannsdóttir, viðskiptafræðingur. 

Innri endurskoðun 

Innri endurskoðun Strætó bs. er í höndum Söru Fannar Jóhannesdóttur hjá Deloitte samkvæmt samningi við félagið. 

Hlutverk innri endurskoðunar er að veita stjórn og stjórnendum óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf með það að markmiði að bæta starfsemi félagsins. Innri endurskoðun metur og rýnir virkni áhættustýringar, innra eftirlits og stjórnarhátta í samræmi við viðurkenndar starfsvenjur. 

 

Ytri endurskoðun 

Ytri endurskoðandi Strætó bs. er Bjarni Már Jóhannesson hjá Grant Thornton endurskoðun ehf., sem sinnir endurskoðun félagsins í samræmi við lög og viðurkennda endurskoðunarstaðla. 

Hlutverk ytri endurskoðanda er að endurskoða ársreikning félagsins og láta í ljós óháða áritun um hvort hann gefi glögga mynd af afkomu, efnahag og sjóðstreymi í samræmi við viðeigandi reikningsskilareglur. 

Ytri endurskoðandi starfar sjálfstætt og óháð félaginu í samræmi við lög og siðareglur endurskoðenda. Hann á regluleg samskipti við endurskoðunarnefnd og stjórn félagsins og gerir grein fyrir helstu niðurstöðum endurskoðunar, þar á meðal atriðum sem varða innra eftirlit og áhættustýringu eftir því sem við á. 


Per­sónu­vernd

Strætó bs. leggur ríka áherslu á vernd persónuupplýsinga og virðingu fyrir réttindum einstaklinga við vinnslu þeirra. 

Félagið starfar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR), eftir því sem við á. Lögð er áhersla á að vinnsla persónuupplýsinga fari fram með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti og að skyldur félagsins sem ábyrgðaraðila séu uppfylltar. 

Strætó bs. hefur tilnefnt persónuverndarfulltrúa í samræmi við lagaskyldu. Hlutverk persónuverndarfulltrúa er að fylgjast með því að vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög og reglur, veita ráðgjöf og vera tengiliður við eftirlitsaðila. Vinnsluskrá félagsins er uppfærð reglulega. 

Árið 2025 gegnir Sigurður Már Eggertsson hlutverki persónuverndarfulltrúa. 


Upp­lýs­inga­ör­yggi

Strætó bs. leggur áherslu á upplýsingaöryggi sem hluta af áhættustýringu og innra eftirliti félagsins. Markmið er að tryggja vernd upplýsinga, rekstrarkerfa og samfellu í þjónustu. 

Félagið hefur sett sér upplýsingaöryggisstefnu og vinnur markvisst að því að greina og meta öryggisógnir sem geta haft áhrif á rekstur og þjónustu. Reglulegt áhættumat upplýsingakerfa er framkvæmt til að forgangsraða viðeigandi öryggisráðstöfunum. 

Strætó bs. hefur falið sérhæfðu öryggisfyrirtæki, Syndis, að sinna hlutverki upplýsingatækniöryggisstjóra (CISO).