Sjálfbærniskýrsla Strætó 2025Samfélagið

Sam­fé­lag­ið

Strætó leggur ríka áherslu á hlutverk sitt í samfélaginu sem þjónustufyrirtæki á sviði almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að uppfylla hlutverkið eru gildi fyrirtækisins höfð að leiðarljósi. Gildin eru samvinna, áreiðanleiki og drifkraftur.

Samvinna: Samvinna einkennir allt okkar starf, bæði innan fyrirtækis og gagnvart viðskiptavinum, eigendum og samstarfsaðilum.

Áreiðanleiki: Við erum á réttum stað á réttum tíma, erum hagsýn og ábyrg í öllum okkar störfum.

Drifkraftur: Við erum frumkvæðismiðuð og höfum kjark og þor til að taka ákvarðanir og leysa mál hratt og vel.


Lofts­lags­mál

Strætó bs. gegnir mikilvægu hlutverki í orkuskiptum í samgöngum og leggur sitt af mörkum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á höfuðborgarsvæðinu. 

Strætó starfar á umbreytingartímabili þar sem fyrirhugaðar breytingar á skipulagi almenningssamgangna munu hafa áhrif á framtíðarfyrirkomulag starfseminnar. Á þessu tímabili er lögð áhersla á að viðhalda öruggri og áreiðanlegri þjónustu og lágmarka umhverfisáhrif rekstrar eftir bestu getu. 

Í ljósi þess að ekki er gert ráð fyrir frekari fjárfestingum í vagnaflota á líftíma félagsins er lögð áhersla á að hámarka nýtingu núverandi eigna, viðhalda rekstraröryggi og draga úr umhverfisáhrifum með hagkvæmum og markvissum aðgerðum. 

Strætó starfar í samræmi við stefnu stjórnvalda í loftslagsmálum og tekur þátt í samstarfsverkefnum á sviði sjálfbærni, þar á meðal Græna planinu, sem er sóknaráætlun Reykjavíkurborgar um kolefnishlutlaust borgarsamfélag. 

Félagið stuðlar jafnframt að aukinni vitund um loftgæði og sjálfbærar samgöngur með því að miðla upplýsingum um loftgæði og hvetja almenning til að nýta vistvæna samgöngumáta þegar aðstæður kalla á það. 


Heims­mark­mið­in

Strætó hefur innleitt heimsmarkmið 11, 12 og 13 í sínar stefnur. Heimsmarkmiðin eru sjálfbærar borgir og samfélög (11), ábyrg neysla og framleiðsla (12) og aðgerðir í loftlagsmálum (13).


Um­hverf­is­mál

Strætó bs. vinnur að því að lágmarka umhverfisáhrif og stuðla að sjálfbærum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu. 

Ekki er gert ráð fyrir frekari fjárfestingum í vagnaflota á líftíma félagsins vegna breytinga á skipulagi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Á þessu tímabili er því lögð áhersla á að hámarka nýtingu núverandi eigna, viðhalda rekstraröryggi og draga úr umhverfisáhrifum eins og kostur er. 

Strætó bs. fylgist reglulega með umhverfisáhrifum starfseminnar og greinir þróun þeirra.
Félagið skráir lykiltölur um orkunotkun, eldsneytisnotkun og losun gróðurhúsalofttegunda og nýtir þær til að bæta rekstur og styðja við gagnsæja upplýsingagjöf til eigenda og hagsmunaaðila. 

Tölur í umfjölluninni um umhverfismál eiga aðeins við um eigin akstur Strætó. Neðar í þessum kafla má þó finna upplýsingar um eigin akstur Strætó og akstur verktaka, þ.e. vegalengdir og olíunotkun.

Helstu áherslur í umhverfismálum eru: 

  • að lágmarka losun og umhverfisáhrif rekstrar  
  • að tryggja hagkvæma og ábyrga nýtingu vagnaflota  
  • að taka tillit til umhverfissjónarmiða við innkaup  
  • að efla fræðslu og vitund starfsfólks um umhverfis- og öryggismál  
  • að gera kröfur um umhverfisábyrgð til verktaka og samstarfsaðila  
  • að stuðla að aukinni notkun almenningssamgangna með upplýsingagjöf og fræðslu  

Vagnaflotinn sem rekinn er af Strætó samanstendur af 73 vögnum, 28 rafvögnum, 4 metanvögnum og 41 dísel vögnum. Vagnafloti verktaka eru 88 vagnar, þar af 86 dísel vagnar, 17 reknir af Hagvögnum  og 69 vagnar reknir af Kynnisferðum ásamt 2 rafvögnum sem einnig eru reknir af Kynnisferðum. 

Strætó nýtir sér umhverfisvöktunarkerfi Klappa sem gefur betri heildarmynd á umhverfisupplýsingar með því að safna gögnum með rafrænum gagnastraumum í gegnum kerfi Klappa. 

Orku- og vatnsnotkun

Orkunotkun Strætó bs. tengist að stærstum hluta rekstri vagnaflota félagsins. Helstu orkugjafar eru eldsneyti og raforka sem notuð er til að knýja ökutæki. 

Strætó bs. fylgist reglulega með orkunotkun og þróun hennar og leitast við að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og kostur er, meðal annars með aukinni notkun vistvænni orkugjafa. 

Eldsneyti

Strætó bs. hefur á undanförnum árum unnið að orkuskiptum í samgöngum með innleiðingu vistvænni orkugjafa. 

Í ljósi þess að félagið starfar á umbreytingartímabili og ekki er gert ráð fyrir frekari fjárfestingum í vagnaflota á líftíma þess er lögð áhersla á að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis eins og kostur er með markvissri nýtingu núverandi vagnaflota. 

Notkun á dísel heldur áfram að minnka á milli ára með tilkomu fleiri rafvagna. Stefna Strætó er að minnka notkun á dísel.

Tegund eldsneytisEiningar2022202320242025

Dísel 

Lítrar

1.341.473

1.382.309 

1.279.727

1.124.129

Dísel á miðstöð rafvagna

Lítrar

75.895

72.058

61.147

51.698

Dísel samtals

Lítrar

1.417.368

1.454.367 

1.340.874

1.175.827

Metan

Nm³

176.664

127.572

121.468

182.741

Raforku- og vatnsnotkun

Raforku- og vatnsnotkun Strætó bs. tengist annars vegar rekstri vagnaflota og hins vegar starfsemi á starfsstöðvum félagsins. 

Félagið skráir upplýsingar um raforku- og vatnsnotkun eftir því sem við á og leitast við að fylgjast með þróun þeirra. Upplýsingarnar veita yfirsýn yfir notkun auðlinda og eru nýttar eftir því sem kostur er til að styðja við rekstur og upplýsingagjöf. 

Raforkunotkun tengist meðal annars rekstri rafvagna og starfsemi á starfsstöðvum, auk hleðslu ökutækja þar sem við á, þar á meðal hleðslu starfsfólks. 

Vatnsnotkun tengist aðallega þvotti og viðhaldi vagna. 

Í ljósi þess að félagið starfar á umbreytingartímabili er lögð áhersla á að nýta núverandi innviði með ábyrgum hætti og draga úr umhverfisáhrifum eins og kostur er. 

Tölur um orkunotkun eru fyrir starfstöð Strætó að Hesthálsi 14 og rafmagnsnotkun á endastöðum og annars staðar hjá Strætó. Raforkunotkun hefur verið að aukast vegna fjölgunar rafmagnsvagna. Hleðslustöðvar fyrir strætisvagna eru á lóð Strætó að Hesthálsi og einnig er hleðslustöð við biðstöð Strætó í Spöng og í Ásgarði. Rafmagnsnotkun fyrir hleðslustöðvar starfsmanna er einnig inn í rafmagnsnotkun fyrir aðalhús að Hesthálsi 14.

Orkunotkun StrætóEiningar2022202320242025
Þvottastöð

Rafmagn

kWh

113.132

108.379

110.558

182.741

Heitt vatn

m³

8.879

12.799

7.602

9.377

Kalt vatn

m³

8.637

6.610

7.540

8.223

Aðalhús

Rafmagn

kWh

735.828

726.832

814.938

784.969

Heitt vatn

m³

20.326

18.390

15.510

16.740

Kalt vatn

m³

3.632

3.017

3.222

2.553

Endastöðvar og annað

Rafmagn

kWh

40.193

49.318

89.022

85.801

Hleðslustöðvar vagna

Rafmagn

kWh

1.349.283

1.291.971

1.301.214

1.594.995

Samtals

Rafmagn

kWh

2.238.436

2.176.500

2.315.732

2.648.506

Heitt vatn

m³

29.205

31.189

23.112

26.117

Kalt vatn

m³

12.269

9.627

10.762

10.776

Í starfsemi Strætó er lögð áhersla á orkusparnað og að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Eitt af markmiðum Strætó er að auka notkun á vistvænum orkugjöfum. Hlutfall vistvæns aksturs hefur verið að hækka síðustu ár og var 33% síðasta ár.

Losun gróðurhúsalofttegunda hjá Strætó 2022 - 2025

  • Bein losun vegna eldsneytisnotkunar
  • Eknir km – Dísel
  • Eknir km – Metan
  • Eknir km – Rafmagn

Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla starfsmanna

Hleðslustöðvar starfsmannaEiningar2022202320242025

Rafmagn

kWh

21.158

35.607

46.818

50.375

Rekstrarumfang og vagnafloti

Rekstrarumfang og samsetning vagnaflota Strætó bs. hefur áhrif á umhverfisáhrif starfseminnar. 

Starfsemi félagsins byggir á bæði eigin akstri og akstri verktaka, sem saman mynda umfang almenningssamgangna á þjónustusvæði Strætó. Umfang aksturs og samsetning vagnaflota hafa bein áhrif á orkunotkun, losun og rekstraröryggi. 

Vagnafloti sem nýttur er í rekstri Strætó samanstendur af ökutækjum í eigu félagsins og verktaka sem nýta sambærilega orkugjafa og uppfylla sömu umhverfisstaðla. Munur liggur einkum í hlutfalli rafknúinna vagna í flotanum. 

Upplýsingar um akstur og vagnaflota veita mikilvægt samhengi fyrir umhverfisupplýsingar félagsins, þar á meðal orkunotkun og losun. 

Taflan sýnir heildarnotkun og heildarakstur vagna hjá Strætó og öðrum akstursaðilum sem aka á höfuðborgarsvæðinu á vegum Strætó. Á síðasta ári var 43% af heildarakstrinum hjá Strætó, á mynd má sjá hvernig akstur skiptist á milli akstursaðila.

Akstursaðilar 2025

  • Strætó bs.
  • Kynnisferðir
  • Hagvagnar

Hlutfall vistvæns aksturs af heildarakstri allra strætisvagna á síðasta ári var 14%.

AkstursaðilarEiningarHeildarnotkunFjöldi vagnaNotkun á vagnEknir kmNotkun á 100 km
Verktakar

Hagvagnar - Díselvagnar

Lítrar

656.488

17

38.617

1.562.430

42.0

Kynnisferðir - Díselvagnar

Lítrar

1.854.350

69

26.875

4.300.000

43.1

Kynnisferðir - Rafvagnar

kWh

2.250

2

11.250

15.000

150,0

Samtals

88

5.877.430

Strætó bs.

Díselvagnar

Lítrar

1.124.129

41

27.418

2.863.229

39,3

Metanvagnar

Nm³

182.741

4

45.685

182.741

100

Rafvagnar

kWh

1.452.322

28

51.869

1.231.674

117,9

Dísel á miðstöð rafvagna

Lítrar

51.698

4,2

Samtals 

73

4.277.644

28 vagnar hjá Strætó eru rafmagnsvagnar og þar af leiðandi flokkaðir sem umhverfisvænir.  Því hærri sem staðlatalan er því betri teljast mengunarvarnir vagnanna og vænni kostur fyrir umhverfið.

Euro staðlarStrætóHagvagnarKynnisferðirSamtals

E-BUS

28*

0

2

30

METAN

4

4

EURO 6

28

17

69

114

EURO 5

13

13

Samtals

73

17

71

161

* Inni í þessari tölu eru 3 leigu rafmagnsvagnar

Losun gróðurhúsalofttegunda  

Bein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) Umfang 1

Bein losun gróðurhúsalofttegunda hjá Strætó er vegna eldsneytisnotkunar. Við útreikninga á beinni losun er haldið utan um olíu- og metan notkun og notaðir voru losunarstuðlar frá Klöppum 2,563 kgCO2í/L fyrir dísel 5% VLO,  2,30956 kgCO2í/L fyrir dísel 15% VLO  og 0,00511 kgCO2í/kg fyrir metan. Dísel vagnar Strætó eru í dag knúnir 5% vetnismeðhöndlaðri lífrænni olíu (VLO).

Árið 2025 var losun 3.014,3l  tCO2í vegna eldsneytis fyrir strætisvagna. Bein losun heldur áfram að minnka eins og síðustu ár samhliða kaupum á umhverfisvænum vögnum.

Umfang 1 - Samsetning losunarEiningar2022202320242025

Heildarlosun

tCO₂í

3.633,4

3.728,0

3.437,1

3.014,3

Eldsneytisnotkun

tCO₂í

3.633,4

3.728,0

3.437,1

3.014,3

Óbein orkulosun gróðurhúsalofttegunda (GHL) Umfang 2

Losun var reiknuð út frá stuðlum fyrir hvert ár fyrir sig frá Umhverfisstofnun. Fyrir heitt vatn var notað losunarstuðull núll frá Umhverfisstofnun.

Umfang 2 - Samsetning losunarEiningar2022202320242025

Heildarlosun

tCO₂í

23,1

22,4

23,9

27,3

Rafmagn - Hestháls 14

tCO₂í

8,7

8,6

9,5

10

Rafmagn - Endastöðvar og annað

tCO₂í

0,4

0,5

0,9

0,9

Rafmagn - Hleðslustöðvar vagna

tCO₂í

13,9

13,3

13,4

16,4

Önnur óbein losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) Umfang 3

Til óbeinnar losunar starfseminnar í umfangi 3 er meðhöndlun sorps, akstur verktaka og flug starfsfólks.

Við útreikninga á losun gróðurhúsalofttegunda frá urðun úrgangs var notast við losunarstuðla frá Umhverfisstofnun. Hjá Umhverfisstofnun er gefið upp að þeir úrgangsstraumar sem fara í endurvinnslu valdi engri losun á Íslandi og hafa því losunarstuðulinn 0.

Óbeinni losun eldsneytisnotkun verktaka vegna aksturs var reiknuð út frá olíunotkun og losunarstuðli fyrir dísel 5% VLO.

Starfsfólk Strætó flaug talsvert meira en síðustu ár eða 30 ferðir til og frá Íslandi á árinu 2025. Samkvæmt reiknivél Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO) þá er losun þessara ferða samtals 9,4 tonn af CO2.

Umfang 3 - Samsetning losunarEiningar2022202320242025

Heildarlosun

tCO₂í

6.015,6

5.878,6

6.203,6

6.459,4

Förgun og meðhöndlun á úrgangi - Hestháls 14

tCO₂í

14,2

14,0

13,0

10,0

Förgun og meðhöndlun á úrgangi - Endastöðvar og annað

tCO₂í

6,2

5,2

5,0

5,0

Eldsneytisnotkun verktaka

tCO₂í

5.988,9

5.852,4

6.179,8

6.435,0

Flug starfsfólks

tCO₂í

6,3

7,0

 5,8 

9,4

Bein losun gróðurhúsalofttegunda hefur verið að lækka síðustu ár.

GróðurhúsalofttegundirEiningar2022202320242025

Umfang 1

tCO₂í

3.633,4

3.728,0

3.437,1

3014,3

Umfang 2

tCO₂í

23,1

22,4

23,9

27,3

Umfang 3

tCO₂í

6.015,6

5.878,6

6.203,6

6459,4

Losun gróðurhúsalofttegunda (Umfang 1, 2 og 3)

tCO₂í

9.672,1

9.629,1

9.664,6

9501,0

Bein losun gróðurhúsalofttegunda á vagn

tCO₂í/vagn

144,4

143,7

130,6

130,2

Meðhöndlun úrgangs

Hreinsun og flutningur ehf. sér um megnið af sorpþjónustu hjá Strætó á Hesthálsi.  Spilliefni, rafgeymar, perur og raftæki fara til Terra og úrgangur sem fellur til á endastöðum og kaffiaðstöðu annars staðar en á Hesthálsi.

Hjá Strætó bs. er leitast við að lágmarka úrgang eins og kostur er og hefur hann farið minnkandi undanfarin ár.

ÚrgangurEiningar2022202320242025

Blandaður úrgangur - Hestháls 14

kg

16.150

15.500

14.360

11.282

Blandaður úrgangur - Endastöðvar og annað

kg

7.054

5.979

5.542

5.193

Til urðunar samtals

kg

23.204

21.479

19.902

16.475

Úrgangur til endurvinnslu

Garðaúrgangur

kg

0

0

0

0

Málmar/brotajárn

kg

14.570

21.940

17.110

20.180

Timbur

kg

4.340

3.190

4.820

4.840

Annað (plast, pappi, pappír, dagblöð/tímarit)

kg

5.511

4.670

497

4.640

Hjólbarðar

kg

10.510

8.520

13.680

6.880

Til endurvinnslu samtals

kg

34.931

38.320

36.107

36.540

Spilliefni

Olía og olíumengað

kg

5.370

28.639

8.638

7.610

Rafgeymar og rafhlöður

kg

2.203

4.109

1.760

4.538

Prenthylki

kg

29

3

3

0

Raftæki

kg

1.111

1.112

661

664

Perur/flúrperur

kg

7

4

1

0

Málning

kg

2

0

0

0

Spilliefni samtals

kg

8.722

33.867

11.063

12.812

Efnanotkun

Strætó leitast við að minnka efnanotkun. Á síðasta ári voru mun fleiri hjólbarðar sólaðir en keyptir eða 416 sólaðir og 130 keyptir nýir. Með því að sóla hjólbarða í stað þess að kaupa nýja er losun Co2 minni, þar sem minna þarf af olíu og hráefni við framleiðslu dekkjanna og einnig vegna minni orkuþarfar.

EfnanotkunEiningar2022á vagn2023á vagn2024á vagn2025á vagn
Akstur

Vagnafjöldi

67

67

74

73

Eknir km:

km

4.500.366

 4.406.738 

4.246.952

4.154.852

Smurolía

Verkstæði

Lítrar

5.298

79,1

3.453

Þvottastöð ábætt

Lítrar

2.257

33,7

6479

96,7

900

Samtals

Lítrar

7.555

112,8

3390

45,8

4.353

59,6

Lítrar per 100 km.

Lítrar/100 km

0,17

0,15

0,08

0.10

Önnur efni

Tjöruhreinsir

Lítrar

6.600

98,5

3.000

44,8

3.780

51,8

3.800

52

Þvottaefni

Lítrar

400

6,0

200

3,0

420

5,8

200

2,7

Frostlögur

Lítrar

5.200

77,6

4.800

71,6

4.200

57,5

4.020

55,1

Hjólbarðar

Sólaðir

stk.

242

287

270

416

Nýir

stk.

120

200

240

130

Samtals

stk.

362

487

510

546

Fjöldi per 100 km.

stk/100 km

0,008

0,01

0,012

0,013


Hags­muna­að­il­ar

Strætó gerir ekki sérstaka hagsmunaaðilagreiningu á forsendum samfélagsábyrgðar en nýtir þess í stað ýmsar aðferðir eins og opna fundi, ábendingakerfi og viðhorfskannanir meðal starfsmanna og almennings.

Lögð er áhersla á þá þætti sem teljast mikilvægir fyrir Strætó og hagaðila í efnistökum skýrslunnar. Viðfangsefni tengjast einnig heimsmarkmiðunum sem Strætó leggur áherslu á og er því betur lýst í kafla um heimsmarkmið.

Viðskiptavinir

Strætó er þjónustufyrirtæki sem leggur megináherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina. Í þjónustustefnu Strætó er lögð áhersla á að auka þjónustu og gæði til viðskiptavina og efla almenningssamgöngur þannig að Strætó verði fyrsti valkostur íbúa höfuðborgarsvæðisins í og úr vinnu eða skóla. Það gerir starfsfólk af ánægju með gildi Strætó, áreiðanleika, samvinnu og drifkraft að leiðarljósi.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við viðskiptavini:

  • Bein samskipti við viðskiptavini eru um borð í strætisvögnum, í þjónustuveri, á samfélagsmiðlum, í gegnum tölvupósta og fleiri boðleiðir.
  • Strætó tekur við formlegum ábendingum frá viðskiptavinum í gegnum vef Strætó. Allar ábendingar eru skráðar og sendar í úrvinnslu.
  • Könnun á notkun og viðhorfi almennings til Strætó er framkvæmd tvisvar á ári.
  • Reglulega heldur Strætó opna fundi eða samráðsviðburði.

Eigendur og stjórnvöld

Strætó er í nánu samstarfi við eigendur (sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu) og íslensk stjórnvöld.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við eigendur og stjórnvöld:

  • Strætó framfylgir stefnu stjórnar.
  • Strætó sinnir markvissri vinnu og stefnumótun í umhverfismálum.
  • Árs- og samfélagsskýrslur eru birtar á vef Strætó.
  • Álit frá Strætó í samráðsgátt stjórnvalda.
  • Innleiðing laga- og reglugerðakrafna.
  • Samkomulag við Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um lán á strætisvögnum í ýmsum aðgerðum.

Starfsfólk

Strætó leggur áherslu á að skapa starfsfólki jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi, efla starfsfólk og stuðla að virkni og ánægju þess. Allt starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð á að skapa jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem gagnkvæm virðing og starfsánægja er í fyrirrúmi. 

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við starfsfólk: 

  • Púlsmælingar á starfsánægju eru mældar mánaðarlega.  
  • Meðmælaskor starfsmanna eru mæld reglulega. 
  • Strætó hefur mótað viðverustefnu sem hefur það að markmiði að draga úr fjarvistum vegna veikinda, styðja og hlúa að starfsfólki vegna fjarveru frá vinnu til lengri eða skemmri tíma. 
  • Strætó stefnir að því að skapa slysalausan vinnustað þar sem enginn starfsmaður, verktaki eða almenningur bíður heilsu- eða líkamstjón í starfsumhverfi Strætó. 
  • Strætó leggur áherslu á inngildingu og fjölbreytileika, að komið sé eins fram við alla og að öllum séu veitt jöfn tækifæri. 

 

 

Birgjar

Strætó leggur áherslu á góð tengsl og samvinnu við birgja og þjónustuaðila. Markmið Strætó er að tryggja að við innkaup sé gætt jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni. Flestir af stærstu og mikilvægustu birgjum Strætó starfa á Íslandi og eru 50 stærstu birgjarnir allir innlendir og af 100 stærstu birgjunum eru einungis 4 erlendir birgjar.

Samfélagið

Strætó gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, sérstaklega er varðar almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu og umhverfismál.

Dæmi um samskipti og samvinnu Strætó við samfélagið:

  • Strætó styður við allar vistvænar samgöngur.
  • Strætó fylgir stefnu stjórnvalda í loftlagsmálum og stuðlar að
    bættum lífsgæðum almennings. Stefnt er að kolefnislausum vagnaflota árið 2030.
  • Strætó hefur látið að sér kveða í loftgæðamálum.
  • Strætó er hagkvæmur valkostur fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.

Samtök

Strætó er aðili að fjölmörgum samtökum, bæði innlendum og erlendum. Þau helstu eru:

 

UITP – International Association of Public Transport

UITP (Union Internationale des Transports Publics) eru alþjóðleg samtök fyrirtækja og hagaðila í almenningssamgöngum. Samtökin voru stofnuð árið 1885 og eru með meira en 1900 meðlimi í yfir 100 löndum.

 

ITS Ísland – Intelligent Transportation System

ITS Ísland var stofnað árið 2019 og var Strætó einn af stofnendum félagsins. Intelligent Transportation System (ITS) er bæði safnhugtak fyrri upplýsingatæknihlið samgangna- og flutningsgeira og formlegur félagsskapur sérfræðinga í tengdum atvinnugreinum um allan heim. Markmið félagsins er að skapa vettvang til að tryggja faglega hagsmuni opinberra og einkarekinna fyrirtækja sem og fræði- og vísindamanna á sviði upplýsingatæknivæddra flutningskerfa í samvinnu við opinbera aðila.

BEST – Benchmarking European Service of Public Transport

BEST eru evrópsk samtök almenningssamgöngufyrirtækja sem hafa það að meginmarkmiði að auka notkun almenningssamgangna í þéttbýli og auka um leið þekkingu á þörfum, kröfum og væntingum viðskiptavina.

 

Stjórnvísi

Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag á Íslandi, í eigu félagsmanna og er félagið ekki rekið í hagnaðarskyni. Stjórnvísi eflir gæði stjórnunar á Íslandi með því að skapa hvetjandi vettvang fyrir gagnkvæma þekkingarmiðlun, umræður og tengslamyndun.

 

Dokkan

Dokkan er þekkingar- og tengslanet stjórnenda og lykilstarfsmanna sem virkar þannig að fyrirtæki og stofnanir – vinnustaðir – gerast áskrifendur að netinu.  Innifalið í þeirri áskrift er aðgangur að þekkingar- og tengslafundum Dokkunnar. Dokkan býður félögum sérstök kjör þegar kemur að námskeiðum, vinnustofum og ráðstefnum.

 

Mannauður – Félag mannauðsfólks á Íslandi

Mannauður eru fagsamtök mannauðsfólks á Íslandi. Hlutverk Mannauðs er að efla fagmennsku, vera framsækið og leiðandi á sviði mannauðsstjórnunar í þágu atvinnulífsins.

 

FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu

FKA eru félagasamtök fyrir konur sem eru stjórnendur og leiðtogar í íslensku atvinnulífi. Félagið stendur fyrir viðburðum, fræðslu, veitir ráðgjöf og knýr fram breytingar á lögum og venjum til að gæta jafnvægis og fjölbreytileika innan atvinnulífsins.

 

Félag um innri endurskoðun

Félag um innri endurskoðun er samstarfsvettvangur þeirra sem starfa við innri endurskoðun í fyrirtækjum og stofnunum. Markmið félagsins er að efla innbyrðis tengsl og kynningu þeirra sem starfa við fagið, vera vettvangur til að styrkja fagleg vinnubrögð, styrkja þróun innri endurskoðunar og faglega umræðu, jafnframt því að vera leiðandi rödd stéttarinnar út á við.

 

ÍMARK – Samtök íslensks markaðsfólks

ÍMARK, samtök íslensks markaðsfólks eru samtök einstaklinga sem hafa áhuga á og/eða starfa við markaðsmál. Tilgangur samtakanna er m.a. að auka veg og virðingu markaðsmála hérlendis og stuðla að auknum skilningi á mikilvægi þeirra.


Strætó í fjöl­miðl­um

Markmið Strætó er að tryggja faglega og trausta upplýsingagjöf til almennings, viðskiptavina, fjölmiðla, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila. Áhersla er lögð á að svara fyrirspurnum fjölmiðla fljótt og örugglega í samræmi við upplýsingalög. 

Það var fjallað um eða minnst á Strætó í 429 skipti á árinu 2025 og er það svipaður fjöldi og árinu á undan.  Eins og fyrri ár voru flestar umfjallanir um Strætó á netmiðlum. Eftirfarandi tölur eru fengnar úr Fjölmiðlavakt Creditinfo. 

Fjöldi umfjallana Skipting eftir mánuðum

Mesta umfjöllunina um Strætó var í ágúst og í október en þjónustuaukning Strætó tók gildi um miðjan ágúst og vakti mikla athygli. Færð var einnig sérstaklega slæm í október sem hafði áhrif á Strætó.  Venjulega er minnst fjallað um Strætó yfir sumarmánuðina og á það einnig við um árið 2025 fyrir utan ágúst þegar þjónustuaukningin hófst.  

Fjöldi umfjallana 2025

Vaktað efni – þróun á tíðni umfjöllunnar eftir mánuðum

Innihaldsgreining frétta

Í innihaldsgreiningum Creditinfo þá er fréttum skipt niður í eftirfarandi flokka:

  • Neikvæðar
  • Hlutlausar
  • Jákvæðar
  • Jafnaðar

„Jafnaðar fréttir“ eru í raun neikvæðar fréttir sem teljast „jafnaðar“ eftir að Strætó hefur komið fram með sín sjónarmið og útskýrt sína hlið.

Jákvæðar fréttir um Strætó voru mun fleiri árið 2025 en síðustu ár sem er mjög jákvæð þróun, eða alls 164. Flestar jákvæðu fréttirnar birtust í ágúst og september og verður að teljast líklegt að þær tengist þjónustuaukningunni sem hófst í ágúst. Neikvæðar fréttir voru einnig færri en áður en flestar fréttir um Strætó voru hlutlausar eða 196.

Flestar neikvæðar fréttir birtust í netmiðlum miðað við aðra miðla sem er breyting frá síðustu árum þar sem dagblöðin voru með flestar neikvæðar fréttir.  

Innihaldsgreining 2025

  • Neikvætt
  • Hlutlaust
  • Jákvætt
  • Jafnað

Innihaldsgreining 2025 - þróun eftir mánuðum

  • Neikvætt
  • Hlutlaust
  • Jákvætt
  • Jafnað

Tengingar við samfélagsmiðla

Tengingar netfrétta við samfélagsmiðla sýnir hversu oft er líkað við fréttir á netmiðlum, athugasemd skrifuð við þær eða þeim deilt á samskiptasíðunni Facebook. Hér er ekki átt við Facebook færslur sen notendur skrifa sjálfir um Strætó eða sem Strætó deilir á sinni síðu. 

Heildartengingum við Facebook heldur áfram að fækka og voru 18.238 á árinu 2025. Jákvætt er að sjá áhrif þjónustuaukningar og eru margar tengingar við fréttir henni tengdri. Einnig eru margar tengingar við samgöngumál í kringum Keflavíkurflugvöll.

Fréttaskor

Fréttaskorið er sjálfvirk greining á mikilvægi frétta. Tilgangur skorsins er að gefa raunsæja mynd af því hversu mikið vægi hver tiltekin frétt hefur.

Fréttaskorið sýnir meðal annars að hve miklu leyti fréttin fjallaði sannarlega um viðkomandi efni og greinir hversu mikla athygli fréttin hlaut. Fréttaskorið er metið á bilinu 1-5 þar sem 1 er mjög lítið vægi og 5 er mjög mikið vægi.

Fréttaskor 2025

  • Mjög lítið vægi
  • Lítið vægi
  • Nokkurt vægi
  • Mikið vægi
  • Mjög mikið vægi