Sjálfbærniskýrsla Strætó 2025Ársreikningur

Árs­reikn­ing­ur 2025

Ársreikningur Strætó bs. fyrir árið 2025 er gerður í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og reglugerðir um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga. Nánari upplýsingar um fjárhagsstöðu, rekstur og reikningsskilaaðferðir er að finna í ársreikningi félagsins.  

Rekstrarniðurstaða ársins 2025 var 12 m.kr. hagnaður, sem er lægri en árið áður. Afkoman skýrist meðal annars af breytingum á umfangi þjónustu, hækkun kostnaðar vegna aðkeypts aksturs og breytingum á tekjusamsetningu.  

Rekstrartekjur jukust milli ára en voru undir áætlun, meðal annars vegna frestunar á þjónustuaukningu. Framlag frá eigendum lækkaði milli ára og var undir áætlun, meðal annars vegna þess að hluti framlaga var nýttur til stofnfjár í nýtt félag um almenningssamgöngur. Framlag frá ríkinu hækkaði milli ára en var undir áætlun, meðal annars vegna tafa á innleiðingu fyrirhugaðra breytinga.  

Rekstrargjöld hækkuðu í takt við aukið þjónustuframboð á síðari hluta ársins, meðal annars vegna hækkunar á kostnaði við aðkeyptan akstur.  

Heildareignir námu 3.090 m.kr. í árslok 2025 og lausafjárstaða batnaði á árinu, meðal annars vegna takmarkaðra fjárfestinga.  

Rekstur Strætó bs. er að verulegu leyti háður framlögum eigenda og opinberum fjárveitingum og mótast af breytingum á rekstrarumhverfi og skipulagi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. 

Rekstur Strætó bs. er að verulegu leyti háður framlögum eigenda og opinberum fjárveitingum og mótast af breytingum á rekstrarumhverfi og skipulagi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. 

Ársreikningur Strætó bs. er endurskoðaður af óháðum endurskoðanda í samræmi við lög og viðurkennda endurskoðunarstaðla.